Það er gaman að vera skemmtilegt þegar maður er flínkur í reikningur...
Börnin
11.03.2008 18:21:19 / helggu

tvífarar

Ég vil byrja á að óska Snæfell til hamingju með bikartitilinn sem þeir unnu um daginn.  Veit að þetta er soldið seint en ég er bara ekki meiri bloggari en þetta.  Annars er ég kominn með formúlu fyrir Snæfell sem verður til þess að þeir vinna titil.  Það er nefnilega þannig að ef að ég hætti þá vinna þeir alltaf titil árið eftir.  Til dæmis þegar ég fór úr Hólminum í Rvk og gekk til liðs við KR þá vann Snæfell fyrirtækjabikarinn og deildarmeistaratitilinn.  Árið eftir var ég í Snæfell og spilaði með þeim allt til þessa tímabils, þar sem ég er fluttur aftur til Rvk og vitir menn, jújú það eru nú þegar tveir titlar í höfn, þ.e. báðar bikarkeppnirnar hafa unnist.  Þannig að ég þarf að spila með Snæfell á næsta tímabili ef þeir ætla að eiga möguleika á titli á tímabilinu þar á eftirl. 

En þetta er nú vonandi bara tilviljun.  Það vita nú allir að Snæfell er með hörku lið og ég veit að þetta er engin tilviljun að Snæfell skuli vera búið að landa þessum tveim titlum nú þegar.  Vonum bara að þeir bæti einum við til vibótar þetta árið. 


En mig langar að koma með tvífara vikunar sem er nýjung hérna á þessari síðu.  Kanski að þetta verði tvífari mánaðarins frekar ef við tökum mið af því hversu öflugur ég er í þessu blessaða bloggi.  En hvað sem því líður að þá eru það þeir bræðurnir Justin Shouse og Dirk Kuyt sem eru tvífarar dagsins í dag. 

      

Já mér finnst nú vera eitthvað líkt með þeim...


» 2 hafa sagt sína skoðun

16.02.2008 19:20:19 / helggu

Í London....

Jæja þá er maður kominn til London.  Sit núna upp á hótelherbergi með G&T og lime að sjálfsögðu ala Laugi Rabba.  Ohhhhhhh þetta er nú frekar ljúft, ekki hægt að segja annað.  En núna eftir korter er ég að fara niður í risa sal sem er hérna á Royal Lancaster hótelinu sem við erum á.  Þar mun árshátíðin sjálf fara fram og verður þetta örugglega rosa gaman hjá okkur í kvöld.  Fór í dag og verslaði smá vegis, ekki mikið samt.  Var alveg að drepast í bakinu eftir allt þetta labb á Oxford street.  Fann þó spriskó fyrir mig, meira að segja tvenn kvikindi, einar buxur og eina peysu.  Svo keypti ég líka kjól fyrir Kolfinnu og skokk eða eitthvað þannig.  Kíki betur á þetta dæmi á morgun.  Ég fór á casino í gær og ætlaði ég að prófa að spila póker í alvöru casino.  En það gekk ekki alveg upp þar sem að á fyrsta casinoinu sem ég fór á var ekki póker þetta kvöldið, er bara 3var í viku, og svo á hinu þá voru öll sæti skipuð þegar ég kom.  Ég beið í c.a. klukkutíma til að bíða eftir sæti og þá var ég orðinn svo þreyttur að ég fór bara heim á hótel að sofa.  Þannig að ég á enn þá eftir að prófa þetta, verður bara að bíða betri tíma.  En langaði bara svona aðeins að koma með smá svona frá London.. Ekki á hverjum degi sem maður bloggar þaðan! 

En ég læt þetta duga í bili þar sem ég verð að fara að drífa mig niður í stuðið. 

Peace out


» 1 hafa sagt sína skoðun

09.02.2008 23:53:20 / helggu

London baby

Jæja, komið þið sæl öll sömul. 

 Núna er bara að koma að því, kallinn er að fara til Englands í fyrsta skiptið á lífsleiðinni.  Það verður London sem verður fyrir valinu, ef val skildi kalla.  En þannig er mál með vexti að ég er að fara á árshátíð með company-inu.  Öllu liðinu boðið út sem er bara mjög gott.  Það er nú löngu orðið tímabært að kíkja til Englands, og er í raun skammarlegt að maður sé að fara í fyrsta sinn núna, orðinn þetta gamall.  Ég segi þetta þar sem að ég er mikill Liverpool aðdáandi og hef enn ekki farið á leik með mínu ástkæra félagi sem er hálf glatað.  Þó svo að þetta sé ekki fótboltaferð að þá er þetta þó einhvers konar byrjun, komast í enska stemmingu.  Svo fer ég bara á næsta ári á leik!  Hverjir vilja koma með mér?????   

 Annars er ég búinn að liggja með einhverju inflúensu í heila viku, er rétt að ná mér núna, þó að ég sé enn hálf slappur.  Gat lítið annað en legið þessa helluðu viku sem var að líða, shit hvað það er ömurlegt að vera veikur.  Hef ekki verið með svona mikinn hita síðan ég var barn held ég bara, eða rétt undir 40 stiga hiti.  Lítið sem maður getur af sér gert í þannig ástandi.  En kanski lán í óláni að maður skuli vera búinn með þetta fyrir ferðina til London, en hún er s.s. á föstudaginn næsta 15. feb.  Ef þið eruð með einhverjar hugmyndir fyrir mig að gera þarna úti, eða ef það er eitthvað sem maður verður að gera í London þá endilega commentiði hérna og ráðleggið mér.  En ég er að hugsa um að fara að sofa núna bara.  Kolfinna er hérna hjá mér núna og maður verður nú að vera hress í fyrramálið þar sem hún er nú ekki mikið fyrir að sofa út þessi elska.

 

Þangað til næst

Peace out.......


» 0 hafa sagt sína skoðun

17.01.2008 18:08:56 / helggu

Evrópumót

Jæja, þá styttist í handboltaleikinn!  Ef ég á að segja alveg eins og er að þá horfi ég nánast aldrei á handbolta.  Finnst þetta frekar leiðinleg íþrótt, en þó verð ég að segja það, að ég horfi á landsliðið okkar á stórmótum.  Það er bara eitthvað við þessa stemmingu, maður fyllist þjóðarstolti og heldur að við séum bestir í heimi!!  Nei kanski ekki alveg.  Skil ekki hvað málið er með þetta, eins og hvað þetta er nú leiðinleg íþrótt.  En ég verð alla vegana fyrir framan nýja sjónvarpið mitt kl. 19:15 á eftir og á alveg örugglega eftir að missa mig í spenningi og látum.  Finnst samt óþarfi hjá fjölmiðlum að hæpa væntingar liðsins alltaf svona upp fyrir stórmót.  Gera landann alveg óðan sem endar svo yfirleitt með vonbrigðum.  En þetta er kanski ekki fjölmiðlum að kenna, þar sem að það eru leikmenn sem eru að blasta þessu í fjölmiðla.  "Já við erum bara að fara í þetta mót til að vinna það".  Já og hvað með það?  Halda því þá bara fyrir ykkur sjálfa, innan liðsins.  Þó að lið sé með háleit markmið, að þá er ekki þar með sagt að útbreiða því yfir alla þjóðina.  Allt í lagi að segja að þeir ætli sér langt í keppninni, eða eitthvað í þá áttina, en come on, ekki gera allt vitlaust með einhverjum öfgkenndum yfirlýsingum.  En þetta er nú bara mín skoðun.  Annars spái ég bara jafntefli í kvöld.  En við verðum bara að vona það besta.  Shit, hvað er í gangi, ég er að blogga um handbolta!

 

Peace Out......... 


» 3 hafa sagt sína skoðun

03.01.2008 01:26:27 / helggu

ég á heima...

Sælt veri fólkið, gleðilegt ár og takk fyrir það gamla. Þá er þessi tími ársins liðin, þ.e.a.s. jólin og allt sem þeim fylgir. Þetta var alveg ljómandi í ár þar sem maður hafði það bara virkilega gott í Hólminum góða. Kom á Þorláksmessu og var nánast alveg fram yfir áramót, fór reyndar í bæinn í eitt jólaboð til systur hennar mömmu 29. des. Kolfinna var kominn til mín 26. des þar sem Heba skellti sér til Danmerkur til mömmu sinnar yfir áramótin. Það er ekki hægt að segja annað en að þegar maður kemur í Hólminn finnst manni maður alltaf vera kominn heim, eða það finst mér amk. Ég er nú líka svo mikill sveitamaður í mér, sem er mjög gott. En nóg um það..

Það var engin undantekning þessi jólin hvað varðar át á manni, ó nei! Það var vel tekið á því að vanda sem er bara jákvætt. Nema hvað, ég er núna búinn að vera í 3 mánuði að gera ekki neitt, hreyfilega séð, þá meina ég ekki að æfa neitt. Það er eitthvað sem ég er alls ekki vanur eins og þið kanski vitið sem kíkið hérna inn. Þetta er nú líka farið að hafa sín áhrif þar sem vömbin á manni er nú tjahhhhh, já ég á bara ekki orð yfir það! En ég get nú samt skýlt mér á bak við það að ég er að gera þetta að tilsögn sjúkraþjálfara þar sem ég var nú orðinn ansi lúinn eftir tímabilið í fótboltanum í haust. Já maður er ekki lengur tvítugur, maður verður víst að viðurkenna það. Annars stendur þetta allt til bóta hjá mér. Þetta er komið gott í bili hvað hvíld varðar og nú verður farið á fullt í endurbætur og ætla ég mér að hefja æfingar á............ eigum við ekki bara að segja á morgun, jú held það bara. Það er s.s. staðfest að Helgi Reynir Guðmundsson mun byrja að hreyfa sig aftur eftir 3ja mánaða hvlíld frá líkamsþjálfum á morgun, fimmtudaginn 3. jan 2008.

Já þá er það komið á hreint. En annars er það að frétta að ég er kominn með íbúð loksins, en hún er í Bólstaðarhlíðinni númer 23. Fínasta íbúð alveg hreint og flutti ég inn í gær 1.jan 2008. Annars er ég svona búinn að vera að skanna fasteignamarkaðinn í des og tók ég þá ákvörðun að bíða eitthvað með að kaupa mér íbúð. Maður bíður bara og vonar að þessari geðveiki fari að linna. Verð eitthvað hérna fram á árið og það er aldrei að vita nema maður detti inn á einhverja gefandi íbúð þegar líður á árið. Já og mig langar að setja link á eitt lag sem ég er að hlusta á núna, sumir hugsa örugglega: djöfull er hann ruglaður að hlusta á þennan viðbjóð, en þetta er bara gott lag sem maður getur hlustað á við ýmis tækifæri. En hérna er þetta: www.radioblogclub.com/open/96631/mandarine_girl/Booka%20Shade%20-%20Mandarine%20Girl Annars held ég að það sé best að fara að halla sér bara, maður er jú að fara að æfa á morgun og þá er nú betra að vera í standi, keyptu þér standara!

 

Segi þetta gott í bili, Peace Out............


» 2 hafa sagt sína skoðun

12.12.2007 14:24:52 / helggu

Er eitthvað að frétta......

Jæja, þá er það komið á hreint. Liverpool FC eru komnir áfram í 16-liða úrslit í meistardeild evrópu. Það var mikill spenningur hjá okkur Óla þegar við settumst fyrir framan 42" sjónvarpið sem þau Gerður voru að kaupa sér um helgina. En það leið ekki á löngu þar til öll spenna hvarf hjá manni. Yfirburðir Liverpool voru slíkir að þetta var bara formsatriði að klára þennann leik. Þetta er vonandi það sem koma skal á sunnudaginn Liverpool leikur við man utd. 

Svo er það bikardrátturinn í körfunni, Snæfell mætir þar Keflavík í næstu umferð í Hólminum.. Þetta er nú leikur sem er þess virði að gera sér ferð í Hólminn.  Keflavík hafa ekki tapað leik á tímabilinu og Snæfell virðast vera að hressast eftir tvo góða útisigra í röð.  En næsti leikur hjá þeim er á morgun á móti ÍR í Breiðholtinu og hvet ég bara alla að mæta og hvetja sína menn til dáða.  Ég ætla amk að mæta sem ætti nú að draga dágóða summu á leikinn:lol:   Hlynur, og ekkert kjaftæði!

Annars er maður að selja auglýsingar á fullu þessa dagana.  Er að vinna hjá Já við að selja auglýsingar í símaskrána, en það er eitthvað sem ég er bara að fíla mjög vel.  Þannig að ef þið viljið auglýsa í símaskránni þá hafið þið bara samband við mig, aldrei að vita nema ég geti gefið ykkur einhvern afslátt.  

En læt þetta duga í bili og segi bara Peace out.... 


» 2 hafa sagt sína skoðun

22.11.2007 15:56:15 / helggu

England

Langar bara að þakka Scott Carson kærlega til hamingju með leikinn í gær.. Sérstaklega langar mig þó að þakka S. McLaren fáfvita til hamingju með þetta frábæra val hjá honum fyrir leikinn í gær á mót Króatíu.  Þvílíkt rugl hjá manninum, ég á bara ekki til orð.  Auðvitað er alltaf gott að vera vitur eftir á en ég held að menn geti nú verið sammála um að Carson hefði átt að vera síðasti kostur í markinu hjá þeim ensku.. Ég persónulega hefði ekki hikað við að setja hinn skemmtilega ruglaða D. James í þennann leik, þar sem maðurinn er hokinn af reynslu og hefði alveg höndlað þessu pressu sem var til staðar.  Auðvitað vita allir að hann er nett kærulaus oft á tíðum og á það til að gera fáránlega hluti, en það er samt á hreinu að hann er mjög góður markmaður og hefði án efa staðið sig vel í þessum leik, en hvað veit ég. Já og svo má auðvitað ekki gleyma Wayne Bridge, þökkum honum líka fyrir mjög viðbjóðslega frammistöðu í gær og biðjum hann bara að fara úr buxunum.  Djöfull var maður pirraður eftir þetta.  Það er nokkuð ljóst að maður bíður ekki með sömu eftirvæntingu eftir lokakeppninni á næsta ári í ljósi þess að þeir ensku klúðruðu þessu.  En jæja, maður hlýtur að jafna sig á þessu fljótlega.  Úfffffff  varð bara að koma þessu frá mér.. 

 Bið að heilsa í bili og segi bara

 Peace Out ...........


» 3 hafa sagt sína skoðun

10.11.2007 09:59:48 / helggu

laugardagsmorgun

Góðan daginn...

Ég var að horfa á sjónvarpið í gær og datt þá inn í mynd sem byggð er á sögu fjögurra félaga frá Pakistan. Þetta er myndin The road to Guanamo. Fjallar s.s. um sögu þeirra félaga og hvernig þeir enduðu í þessu hryllilega fangelsi. Usssssssss, maður skilur bara ekki svona lagað, að svona mannvonska skuli vera til í þessum heimi. Þeir bjuggu s.s. allir í Bretlandi og fóru saman til að byrja með til Pakistan þar sem að einn af þeim ætlaði að gifta sig þar. Þetta endaði með ótrúlegri sögu þeirra félaga og enduðu þrír af þeim í þessu fangelsi, saklausir.  Þessir þrír menn eru lausir í dag og ef fólk hefur ekki séð þessa mynd þá mæli ég með því að þið kíkið á hana. Varð bara aðeins að minnast á þetta.

Annars er það að frétta að ég er kominn með vinnu hérna í Reykjavíkinni. Nú er maður orðinn sölumaður hjá JÁ. Er s.s. þessa dagana að selja auglýsingar í símaskránna sem er verkefni næstu mánaða, en hún  kemur út í maí. Líst bara vel á þetta, helvíti hresst lið þarna hjá JÁ.

En núna erum við krakkarnir bara heima, Heba á ráðstefnu á Laugarvatni og ætlum við eitthvað að dúlla okkur saman í dag. Spurning hvað verður fyrir valinu en eitt er víst að það er nammidagur og maður kemst alveg örugglega ekki frá því að fara í það mál. En það er líka í góðu lagi.  Ætla að láta þetta duga í bili

 

Þangað til næst, Peace out.


» 2 hafa sagt sína skoðun

02.11.2007 13:42:13 / helggu

Tattú....

Já góðan daginn. Eins og þið eflaust vitið þá var maður í Tyrklandi ekki alls fyrir löngu sem er kanski ekki frá sögu færandi, nema hvað. En ég tók þá ákvörðun þarna úti að fá mér tattú! Ég verð nú að viðurkenna að einhvern tímann sagði ég að ég myndi nú aldrei fá mér tattú á lífsleiðinni, en enginn veit sína ævi fyrr enn öll er. En ég ákvað s.s. að skella einu stykki á mig og verð ég nú bara að segja að ég er bara mjög ánægður með útkomuna og sé ekki eftir neinu. En hér að neðan getið þið séð þetta og þið verðir bara að dæma þetta sjálf. En ef ég á að segja alveg eins og er að þá er mér alveg sama hvað öðrum finnst um þetta, en það er önnur ella(gróa), hæææææææææææ.

En svona fyrir sjóndapra að þá stendur þarna Kolfinna, en það er einmitt nafnið á dóttur minni svona fyrir þá sem eru ekki með það á hreinu. En mig langaði bara svona að deila þessu með ykkur. Annars er það að frétta að ég er kominn með vinnu loksins. Eftir að hafa verið atvinnulaus í mánuð þá kom þetta hjá manni og er ég að byrja núna á þriðjudaginn hjá JÁ. En ég verð á auglýsingadeildinni hjá þeim og líst mér bara vel á þetta. En ég ætla nú ekki að tala meira um það í bili þar sem að ég er nú ekki byrjaður enn þá. Kem örugglega með eitthvað þegar komin er meiri reynsla á þetta hjá manni. En er að hugsa um að láta þetta duga bara í bili og bið að heilsa ykkur og óska ykkur góðrar viku sem framundan er. Eða jú eitt í viðbjót, vil óska þeim Hlyn og Unni opinberlega til hamingju með nafnið á lillunni sinni, en það var Heiðrún Björg sem kom upp úr krafsinu hjá þeim og finnst mér það nú bara mjög fallegt nafn ef ég á að segja eins og er. Man alveg hvað þetta voru miklar vangaveltur hjá okkur Hebu á sínum tíma. En þau hafa komist að góðri niðurstöðu á endanum skötuhjúin sem er mjög gott.

En Þangað til næst, Peace Out.............


» 1 hafa sagt sína skoðun

30.10.2007 21:35:55 / helggu

Marmaris

Jæja, þar sem ég er besti bloggari á landinu þá verð ég að koma með eina mynd sem ég er búinn að hlæja mikið af. Var nú bara að sjá hana í fyrsta sinn núna áðan þar sem ég var ekki búinn að skoða allt albúmið frá Marmaris. En þetta er tekið á einhverju diskóteki þarna úti þar sem maður var vægast sagt í stuði. Þeir mega alveg eiga það tyrkirnir að þeir eru hressir, og þessi mynd gefur það líka til kynna. En það voru fleiri hressir þetta kvöld, það er á hreinu. Þessir gaurar voru búnir að standa þarna á sama staðnum í langan tíma á gólfinu að við eitthvað borð og fylgjast með, og sá maður að þeir vildu komast í fjörið með okkur íslendingunum. Ég var ekkert að tvínóna við þetta og rauk bara á þá og tók smá geðveiki þarna. Þeir tóku bara vel í þetta rugl hjá mér eins og sést kannski. Eins gott, annars hefði kannski verið framið annað tyrkjarán. Bara þá hefði þetta verið tyrkja Helgi, ekki tyrkja Gudda...

Já það er gaman að vera í Tyrklandi!!

 

Þangað til næst, hvenær sem það verður

Peace Out.....


» 2 hafa sagt sína skoðun

14.08.2007 17:49:22 / helggu

bara nett svona....

Og svona lítur lið Víkings Ó út tímabilið 2007.

Næsti leikur er á morgunn, miðvikudag á móti Þrótti og það er bara um að gera að mæta á Valbjarnarvöllinn rétt fyrir sjö annað kvöld og horfa á þetta undur. Svo eru það auðvitað dönsku dagarnir um helgina, það verður án efa skemmtileg helgi að vanda þar sem glatt verður á hjalla. Bara svona smá til að sína lit, bið að heilsa í bili.

 

Peace out...


» 3 hafa sagt sína skoðun

11.07.2007 22:09:31 / helggu

sumarfrí!

Jæja, langt síðan síðast..  Langar bara að koma með smá svona í tilefni af því að ég er í sumarfríi í 1. sinn á ævinni held ég bara...  Er búinn að vera síðan 1. júlí og verð út þessa viku sem er alveg frábært.  En ástæðan fyrir þessu fríi er nú bara sú að hún dóttir mín er í sumarfrí allann júlímánuð frá leikskólanum sínum og skiptum við Heba þeim tíma á milli okkar eins og vera ber.  Hún verður hjá mér fyrstu 2 vikurnar og svo síðari 2 hjá Hebu.  Þetta er bara búið að vera alveg frábært hjá okkur feðginunum þar sem við erum búin að vera meira og minna hérna í Ólafsvík allann tímann með þeim feðgum Lauga og Alex.  Kolfinna fór reyndar með ömmu sinni og afa í Hlíð um liðna helgi og hitti þar skyldmenni sín í ömmu sinnar ætt og hafði hún gaman af.  Annars erum við Laugi bara í "pabba leik" þessa dagana sem er alveg frábært.. Alveg nauðsynlegt að fá að eyða svona tíma með barninu sínu, tala nú ekki um þegar maður fær að vera í fríi í leiðinni.  Kolfinna og Alex eru nánast orðin eins og systkini þar sem dóttir mín er farin að reyna að stjórna öllu sem hún mögulega getur, þessi elska..  En þau eru voða duglega að leika sér saman þrátt fyrir aldursmunin á þeim og er Alex alveg merkilega þolinmóður með henni.  Við fórum í Skarðsvík í morgun sem er hérna aðeins lengra en Hellisandur, alveg merkilegt fyrirbæri ef maður tekur mið af því að þetta sé á Íslandi.  En maður hefur á tilfinningunni að maður sé kominn á sólarströnd í útlöndum þegar maður kemur þarna, gullsandur og ég veit ekki hvað að hvað.. Tókum með okkur nesti og lékum okkur þarna í dágóða stund.  Núna er mín farinn í háttinn og Laugi og Alex eru á golf móti. 

En annars er allt ágætt að frétta, erum loksins búnir að vinna leik í boltanum og meira að segja tvo leiki.  Þetta er allt á uppleið hjá okkur og vonandi höldum við bara áfram að byggja ofan á þessa tvo sigurleiki..  Næsti leikur er enginn smá leikur, en þá kemur Elinbergur Sveinsson með sínum nýju liðsfélugum í Leikni í heimsókn til okkar.  Það verður eflaust hörkuleikur og mig grunar að stemmingin í brekkunni verði ekki síðri en á vellinum.  Ég er reyndar ekki búinn að geta mætt á æfingu þessa vikuna þar sem ég fékk sýkingu á ristina sem gerir það að verkum að ég get ekki verið í skóm.  En ég er vongóður um að ná mér góðum af þessu áður en flautað verður til leiks á mánudaginn á móti Leikni.  Maður vill nú ekki missa af svona leik, það er á hreinu.  En ég hugsa að ég láti þetta duga í bili og segi bara þangað til næst  

Peace out.......................


» 1 hafa sagt sína skoðun

23.05.2007 22:25:52 / helggu

bömmer!

Bömmer!


» 2 hafa sagt sína skoðun

22.05.2007 17:56:47 / helggu

long time no seen

Ussssss..  Já þetta er til skammar hvað það er langt síðan maður bloggaði síðast.  En stundum er þetta bara svon hjá manni.  En það er eitt og annað sem gerst hefur síðan ég setti eitthvað hérna inn hjá mér og ætla ég svona að stikkla á stóru hvað það er.

  • Við í Snæfell duttum út úr úrslitakeppninni í 4-liða á móti kr á frekar dramatískan hátt svo ekki sé meira sagt, tölum ekkert meira um það enda algjör óþarfi.
  • Ég er búinn að jafna mig að mestu leyti eftir að hafa dottið út úr úrslitakeppninni á mót kr.
  • Ég er hættur að vinna í íþróttahúsinu í Stykkishólmi sem var btw mjög gefandi.
  • Magni er búinn að kaupa sér hús í Stykkishólmi og húsgagnið hans, hann Nonni Mæju fylgdi að sjálfsögðu með í kaupbæti, ekki amarlegt húsgagn þar á ferð.
  • Siggi Þ. er tekinn við golfvellinum í Hólminum og er núna titlaður vallarstjóri þar sem hann fetar nú í fótspor Vaffarans frá því í fyrra sumar.  Það verður erfitt að fylla hans skarð en ég hef fulla trú á Sigga Þ.
  • Nonni Mæju er byrjaður að vinna hjá hreppurunum, Högna Högna og félugum.  Mikil geðveiki þar fyrir en guð minn góður hvernig verður þetta í sumar, og Jón Beck er þarna víst líka, shiiiiiit........
  • Liverpool eru búnir að slá út PSV og Chealsea í meistaradeildinni og spila úrslitaleikinn á morgunn við AC Milan! 
  • Ég er kominn til Ólafsvíkur for the summer til að spila fótbolta með Víkingunum.  Þetta mun vera 5ta tímabilið í röð sem ég spila með félaginu.  Spilaði reyndar tæplega hálft tímabilið í 3ju deildinni þar á undan og allt tímabilið á undan því.  Þannig að þetta er búið að vera þó nokkuð langt tímabil með Víkingunum, allavegana miðað við að ég sé Hólmari. 
  • Þetta þýðir þá líka að ég er fluttur til hans Lauga í Hábrekkuna og svo er litli drengurinn hans hjá honum núna, hann Alex vinur minn.  Alltaf stuð hjá okkur félugunum hérna í Hábrekkunni, endilega kíkið í heimsókn ef þið eigið leið um Víkina. 
  • Við erum búnir að spila 2 leiki í deildinni í sumar og töpuðum við þeim báðum, á mót KA 1-0 og svo á móti Þór 2-1, en báðir leikirnir fóru fram á Akureyri.  Ekki alveg nógu góð byrjun hjá okkur en þetta er allt á uppleið hjá okkur.
  • Talvan mín fór í fokk fyrir u.þ.b. viku síðan þar sem að móðurborðið hrundi hjá mér.  Þetta þýðir að ég er að fara að kaupa mér tölvu mjög bráðlega. 
  • Man utd var enskur meistari og Chealsea FA meistari, spurning hvort að Liverpool taki Champions deildina á morgun.. Shiiiiiiiiiiiiit hvað ég er að verða spenntur.       

 

En þetta er svona brot af því sem kom upp í hausinn á mér.... En ég vil bara enda á að segja: 

ÁFRAM LIVERPOOL!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!


» 6 hafa sagt sína skoðun

16.04.2007 19:28:22 / helggu

4. júlí.....

Hey, ég var að komast að einu núna á föstudaginn! Svolítið sem ég hafði gaman af að sjá skal ég segja ykkur. Já þið eruð örugglega orðin spennt núna, össsssssss....... En jú, komst að því þegar ég var að horfa á þáttinn um Eurovision, (datt inn í hann í restina) að Eiríkur (rauði) Hauksson á afmæli þann merka dag 4. júlí. Já eins og þeir sem þekkja mig eitthvað að viti efaust vita að þá á ég einmitt afmæli sama dag og kallinn. Veit nefnilega ekki um marga þekkta einstaklinga sem eiga þennann afmælisdag, en núna er allavegana einn í viðbót við þá fáu sem ég veit um. En þeir sem ég veit um fleiri sem eiga afmæli 4. júlí eru tvíburarnir Horace Grant og Harvey Grant, en þeir eru þekktir fyrir að spila körfuknattleik í NBA deildinni hérna á árum áður. Horace Grant er nú kanski þekktari en bróðir sinn, þar sem hann var í liði Chicago Bulls á gullaldar árum liðsins þegar Jordan, Pippen og fleiri góðir menn stóðu saman í því að hala inn hvern meistaratitilinn á fætur öðrum. En svo er þessi dagur 4. júlí líka þjóðhátíðardagur Bandaríkjanna fyrir þá sem ekki vita. En allavegana; ég, Eiki Hauks, Horace og Harvey Grant og USA. Skemmtilega blanda þetta svo ekki verði meira sagt!

 

 

Læt þetta duga í bili, og þangað til næst Peace out........


» 8 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 7
Heimsóknir
Í dag:  7  Alls: 42594
Klukkan