Já góðan daginn. Eins og þið eflaust vitið þá var maður í Tyrklandi ekki alls fyrir löngu sem er kanski ekki frá sögu færandi, nema hvað. En ég tók þá ákvörðun þarna úti að fá mér tattú! Ég verð nú að viðurkenna að einhvern tímann sagði ég að ég myndi nú aldrei fá mér tattú á lífsleiðinni, en enginn veit sína ævi fyrr enn öll er. En ég ákvað s.s. að skella einu stykki á mig og verð ég nú bara að segja að ég er bara mjög ánægður með útkomuna og sé ekki eftir neinu. En hér að neðan getið þið séð þetta og þið verðir bara að dæma þetta sjálf. En ef ég á að segja alveg eins og er að þá er mér alveg sama hvað öðrum finnst um þetta, en það er önnur ella(gróa), hæææææææææææ.
En svona fyrir sjóndapra að þá stendur þarna Kolfinna, en það er einmitt nafnið á dóttur minni svona fyrir þá sem eru ekki með það á hreinu. En mig langaði bara svona að deila þessu með ykkur. Annars er það að frétta að ég er kominn með vinnu loksins. Eftir að hafa verið atvinnulaus í mánuð þá kom þetta hjá manni og er ég að byrja núna á þriðjudaginn hjá JÁ. En ég verð á auglýsingadeildinni hjá þeim og líst mér bara vel á þetta. En ég ætla nú ekki að tala meira um það í bili þar sem að ég er nú ekki byrjaður enn þá. Kem örugglega með eitthvað þegar komin er meiri reynsla á þetta hjá manni. En er að hugsa um að láta þetta duga bara í bili og bið að heilsa ykkur og óska ykkur góðrar viku sem framundan er. Eða jú eitt í viðbjót, vil óska þeim Hlyn og Unni opinberlega til hamingju með nafnið á lillunni sinni, en það var Heiðrún Björg sem kom upp úr krafsinu hjá þeim og finnst mér það nú bara mjög fallegt nafn ef ég á að segja eins og er. Man alveg hvað þetta voru miklar vangaveltur hjá okkur Hebu á sínum tíma. En þau hafa komist að góðri niðurstöðu á endanum skötuhjúin sem er mjög gott.
En Þangað til næst, Peace Out.............